svínaflensan er búin til af mönnum.

Það er algjörlega augljóst. Hvernig væri að bresk yfirvöld stöðvuðu þá menn frekar en að pumpa ótta í fólk og segja fólki síðan að róa sig á sama tíma... Sem er btw mjög góð leið til að hræða fólk "ekki vera hræddur! þetta verður allt í lagi!" af hverju myndi einhver segja það nema það væri hugsanlega ástæða til að vera hræddur?

 Lesið nú þessa grein:

 http://rense.com/general86/manmd.htm


mbl.is Bretar hvattir til að halda ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

JÆJA! Þá er ég búinn að lesa alla þessa grein sem þú bentir á, og ekki nóg með það, heldur er ég einnig búinn að fletta upp hverri annarri og einustu heimild sem hann notar, en einnig leitaði ég að höfundinum sjálfum og horfði á nokkur myndbönd af honum að tala um fuglaflensuna sem var svo mikið panikk hérna um árið.

Allur málflutningur hans er afskaplega ósannfærandi. Hann byrjar á að láta eins og að ef einhver græði peninga af því að lækna sjúkdóma, þá hljóti sá og hinn sami að bera ábyrgð á sjúkdómnum. Það eina sem hann nefnir því til stuðnings, er einkaleyfi sem lyfjafyrirtæki nokkurt fékk á svipuðum tíma og svínaflensan kom út. Það sem höfundur virðist ekki átta sig á er að öll stór fyrirtæki sem standa að nýjungum sækja um hundruði ef ekki þúsundi einkaleyfa á hverju ári. Það er ekkert skrýtið eða merkilegt eða tilviljanakennt við það að hafa fundið eitt frá einu fyrirtæki þar sem einkaleyfi er fengið á nýju lyfi til að díla við flensu. Það er ekkert grunsamlegt við það á nokkurn hátt. Það er fullkomlega eðlilegt. Það kæmi mér verulega á óvart ef ekki væri hægt að finna fleiri tugi af skráðum einkaleyfum á hverju einasta ári fyrir hinum og þessum tegundum flensu.

Annað við þessa grein er alveg óþolandi, og það er að heimildirnar segja allt annað en hann segir þær segja.

Hann segir til dæmis:

"With this patent now secured, the conspirators were now free to create the demand for their "novel" split influenza vaccine by releasing a "novel" split-influenza (combining multiple viruses) pandemic virus from a weapons lab test-tube into unsuspecting human hosts."

Og hin meinta heimild er hér. http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/article/2009/06/17/AR2009061703271.html

Þeir sem nenna að lesa heimildirnar af og til munu sjá að ekkert í þessari grein frá Washington Post bendir til þess að vírusar hafi viljandi verið látnir ofan í óvitandi fólk. Greinin fjallar um ýmislegt sé að í öryggismálum hvað varðar efnavopn Bandaríkjanna, enda eflaust dagsatt. Það er bara ekki það sama og höfundurinn heldur fram.

Hér er annað gott.

"Keep in mind the CDC and HHS would have Americans believe that the pandemic viral outbreak is totally a "natural" occurrence if so then how could Novartis have such an incredible advance knowledge to the point of developing a vaccine with such absolutely PERFECT TIMING???"

Tjah, vírusar þróast með líkunum 100% ef þeir deyja ekki út þannig að það er ekkert skrýtið að þeir hafi vitað þetta fyrirfram. Nýr inflúensufaraldur eins og sá sem dundi yfir árið 1918 hefur lengi verið í bókunum sem ein af ógnum við mannkynið ásamt risaloftsteini, kjarnorkustyrjöld og heimshlýnun. Það er ekkert merkilegt eða skrýtið við þessa tímasetningu.

Síðan gerir hann alvarlega villu þegar hann vitnar í þetta sem heimild: http://www.theforbiddenknowledge.com/hardtruth/cobden_club.htm

Þetta er svo grátlega augljóslega falsað skjal að ég furða mig á því að hann hafi lesið það sjálfur. Þetta á sumsé að vera fundargerð af einhverjum voveiflegum fundi þar sem Sameinuðu Þjóðirnar ætla skömmu eftir 1991 að:

"The Security Council of the U.N. led by the Anglo-Saxon Major Nation Powers, will decree that henceforth, the Security Council will inform all nations that its suffrance on population has ended, that all nations have quotas for population reduction on a yearly basis, which will be enforced by the Security Council by selective or total embargo of credit, items of trade including food and medicine, or by military force, when required."

Þetta hefur ekki gerst og ekkert bendir til þess að þetta sé að fara að gerast. Sameinuðu Þjóðirnar eru ennfremur samansettar úr allra þjóða kvikindum sem myndu aldrei taka í þetta, og það eru ekki ein eða tvær þjóðir sem ákveða stefnu Sameinuðu Þjóðanna.

"The Security Council of the U.N. will inform all nations that outmoded notions of national sovereignty will be discarded and that the Security Council has complete legal, military and econonomic jurisdiction in any region in the world and that this will be enforced by the Major Nations of the Security Council."

Þetta er hernaðarlegur ómöguleiki, enginn innan Sameinuðu Þjóðanna hefur nokkurs konar vald til að samþykkja og hvað þá framkvæma svona lagað.

"The Security Council of the U.N. will take possession of all natural resources, including the watersheds and great forests, to be used and preserved for the good of the Major Nations of the Security Council."

Þetta er svo gjörsamlega út í hött að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Engin þjóð í heiminum væri samþykk þessu, hvorki Bandaríkin né Rússland né Kína né neinn.

"The Security Council of the U.N. will explain that not all races and peoples ara equal, nor should they be."

Ég bíð æstur eftir því að Sameinuðu Þjóðirnar gefi út opinbera yfirlýsingu þess efnis að kynþættir heimsins séu ekki lengur jafnir fyrir alþjóðlegum lögum.

Maður þarf virkilega að vita NÁKVÆMLEGA EKKI NEITT um Sameinuðu Þjóðirnar til að láta sér detta það til hugar að þær myndu samþykkja eða framkvæma nokkuð þessu líkt, né að þær gætu það! Sameinuðu Þjóðirnar rétt svo hanga saman á bláþræði vegna þess að þjóðir innan þeirra eru ósammála um mun minniháttar hluti heldur en 180 gráðu stefnubreytingu í inngangi stofnsáttmálans.

Höfundur þessarar greinar lætur allan tímann eins og að bólusetning hafi einhvern tíma verið, eða eigi að vera, eða að nokkur segi að séu algerlega hættulausar. Það eru alltaf hættur við bólusetningar og lyfjafræði almennt. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að eitt og eitt bóluefni valdi krabbameini, eða stundum sé ekki nægilega gætt að öryggi.

Það þýðir ekki að svínaflensan hafi verið af mannavöldum.

Ég mæli sterklega með aðeins skeptískara hugarfari við lestur svo glannalegra kenninga.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 01:06

2 identicon

Gleymdi að nefna það sem kemur fram í EINU heimildinni sem hann býður sem nokkurt vit er í, sem er þessi: http://www.who.int/csr/disease/swineflu/notes/h1n1_vaccine_20090713/en/index.html

Þar kemur einmitt fram, þvert á við það sem höfundurinn virðist geta troðið inn í hausinn á sér:

"Since new technologies are involved in the production of some pandemic vaccines, which have not yet been extensively evaluated for their safety in certain population groups, it is very important to implement post-marketing surveillance of the highest possible quality. In addition, rapid sharing of the results of immunogenicity and post-marketing safety and effectiveness studies among the international community will be essential for allowing countries to make necessary adjustments to their vaccination policies."

Er það þá komið á hreint? Það eru alltaf hættur á slysum við lyfjagerð, og verður alltaf. Það er hluti af vandanum við að framleiða ný lyf. Þetta er alltaf spurning um áhættumat og það er verulega trikkí. Það þarf ekkert samsæri til þess.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón Heiðar Valgarðsson
Guðjón Heiðar Valgarðsson
ræræræ

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband